|
12.8.2010
Hvert fór sumarið?
Heyskap er lokið og við fengum meira hey en gert var ráð fyrir. Búið að nefna tvö af þremur folöldum. Hryssa undan Vanadísi og Fróða heitir Vök. Hryssa undan Stemmu og Ás heitir Staka. Þá vantar bara nafn á litla skjóna undan Þræsingu og Þristi. Vona að það fari nú
meira »
|
|
20.7.2010
Þá er Steinunn vinkona mín komin heim frá Danmörku. Steinunn fór sem fulltrúi Íslands á Youth Cup 2010. Við Sigrún Erlings hestuðum dömuna, fyrir valinu varð stóðhesturinn Kári frá Eystri Hól. Kári er undan Hryðju Garðabæ og Kolfinni frá Kjarnholtum.
Fann því miður ekki mynd af Kára folaldi hér
meira »
|
|
17.6.2010
Þá er Blíða sparimeri Þorvaldar köstuð. Þar kom brúnn hestur sem Þorri á. Þessi hestur er undan Seið frá Flugumýri. Ljómandi flott folald eins og vænta mátti undan þessum foreldrum. Alltaf jafn gaman að sjá folöld hreyfa sig. Þessi litli hestur fór um þúfurnar eins og ekkert væri. Fallegar
meira »
|
|
13.6.2010
Mikið fjör og mikið gaman. Fórum austur í dag að skoða tvö nýköstuð skjótt folöld. Á myndinni er hryssa sem Þorvaldur á undan Stemmu og Ás frá Ármóti. Ég fékk líka brúnskjótt það var hestur sem er undan Þræsingu og Þristi.
Nú eru stóru vandamálin að finna skemmtileg nöfn á þessi tvö. Gaman að fá skjótt
meira »
|
|
6.6.2010
Þá er Sandra köstuð. Fjórði hesturinn í röð. Þetta er brúnn hestur undan Myrkva frá Hvoli. Þorri á þetta folald. Sandra hefur eignast tvo brúna og tvo rauða hesta. Ég mun setja inn myndir af þeim mæðginum þegar við höfum skoðað gripinn. Það verður spennandi að vita hvaða nafn Þorri velur.
meira »
|
|
2.6.2010
Þá er komið að því að fyrsta folaldið okkar er komið.
Vanadís frá Hrauni og Fróði frá Staðartungu eru stoltir foreldrar þessarar litlu bleikstjörnóttu hryssu.
Það er ekki komið nafn á gripinn þannig að það bíður betri tíma. Þetta er alltaf jafn gaman að fara og sjá þessar litlu verur
meira »
|
|
1.6.2010
Undarlegheitin halda áfram nú er búið að fresta LM til 2011. Þetta heldur áfram að vera skrítið vor. Nú vakna að sjálfsögðu margar spurningar eins og t.d. í hvaða flokki keppendur í barnaflokki sem eru á síðasta ári 2010 verða 2011 og sv.frv.
Hvað með kynbótahross sem ná LM lágmörkum
meira »
|
|
11.5.2010
Það er undarlegt að fara í hesthúsin þessa dagana. Veðrið aldrei betra hrossin í flottu fóðurstandi. Ekkert farið á bak.
Við erum að reyna að átta okkur á hvort veikindi séu í húsinu eða ekki. Held að eitthvað af hrossum séu slöpp ekkert veikt. Förum óskaplega varlega og reynum að láta hrossin
meira »
|
|
23.4.2010
Sumarið komið þrátt frost og funa.
Eldfjöll spúa eldi og eymyrju bændur og búalið standa í stórhreingerningum með aðstoð hjálparsveitamanna. Við erum heppinn að eiga svona frábærar hjálparsveitir.
Leiðinda kveðfpest herjar á hrossastofninn heilu húsin eru eins og sjúkrastofur og knapar sem
meira »
|
|
8.4.2010
Þá er vorið að koma. Sól og blíða dag eftir dag þó kalt sé suma morgna. Ótrúlegt hvað veturinn hefur flogið áfram og eiginlega ekki komið.
Nú er bara að bíða eftir folöldunum það er svo spennandi að sjá hvað kemur. Öll folöld eru falleg allavega í augum eigenda.
Við fáum vonandi þrjú folöld í vor.
meira »
|
|
24.3.2010
Þá er farið að gjósa. Allir skeppnueigendur eru hræddir þegar þetta gerist. Við erum með fylfullar hryssur í landeyjunum og höfum að sjálfsögðu áhyggjur. Eflaust eru allir í okkar sporum að velta því fyrir sér hvort flytja eigi hrossin eitthvað annað og þá hvert.
Nú að öðru þá
meira »
|
|