|
Þá er Sandra köstuð. Fjórði hesturinn í röð. Þetta er brúnn hestur undan Myrkva frá Hvoli. Þorri á þetta folald. Sandra hefur eignast tvo brúna og tvo rauða hesta. Ég mun setja inn myndir af þeim mæðginum þegar við höfum skoðað gripinn. Það verður spennandi að vita hvaða nafn Þorri velur.
Skrítið hvernig þetta er með hryssur og folöld sumar eiga bara hryssur og aðrar hesta. Það væri nú gaman að vita hvað ræður kyni á folaldi.
Við viljum öll fá hryssur og verðum hálf svekt þegar það koma hestar. Samt eru folold eitthvað það fallegasta sem maður sér.
|