Hrossarækt er stórt orð, sem við erum svolítið að spreyta okkur við, en höfum reynt að gæta þess að vera smá í sniðum.
Við erum erum nær eingöngu með sýndar hryssur og höldum þeim undir góða, oftast sýnda hesta. Það sem við teljum áhugavert er, að hrossin séu geðgóð og auðtamin, gangskil góð og framhugsun í lagi. Rými og Ófeigsblóð má gjarnan vera með í för.
Hér til hliðar er listi yfir hryssur sem nú eru í ræktun okkar og afkvæmi þeirra.