|
20.7.2010
Þá er Steinunn vinkona mín komin heim frá Danmörku. Steinunn fór sem fulltrúi Íslands á Youth Cup 2010. Við Sigrún Erlings hestuðum dömuna, fyrir valinu varð stóðhesturinn Kári frá Eystri Hól. Kári er undan Hryðju Garðabæ og Kolfinni frá Kjarnholtum.
Fann því miður ekki mynd
meira »
|
|
17.6.2010
Þá er Blíða sparimeri Þorvaldar köstuð. Þar kom brúnn hestur sem Þorri á. Þessi hestur er undan Seið frá Flugumýri. Ljómandi flott folald eins og vænta mátti undan þessum foreldrum. Alltaf jafn gaman að sjá folöld hreyfa sig. Þessi litli hestur fór um þúfurnar eins og ekkert
meira »
|
|
13.6.2010
Mikið fjör og mikið gaman. Fórum austur í dag að skoða tvö nýköstuð skjótt folöld. Á myndinni er hryssa sem Þorvaldur á undan Stemmu og Ás frá Ármóti. Ég fékk líka brúnskjótt það var hestur sem er undan Þræsingu og Þristi.
Nú eru stóru vandamálin að finna skemmtileg nöfn á þessi
meira »
|
|
6.6.2010
Þá er Sandra köstuð. Fjórði hesturinn í röð. Þetta er brúnn hestur undan Myrkva frá Hvoli. Þorri á þetta folald. Sandra hefur eignast tvo brúna og tvo rauða hesta. Ég mun setja inn myndir af þeim mæðginum þegar við höfum skoðað gripinn. Það verður spennandi að vita hvaða nafn Þorri
meira »
|
|
2.6.2010
Þá er komið að því að fyrsta folaldið okkar er komið.
Vanadís frá Hrauni og Fróði frá Staðartungu eru stoltir foreldrar þessarar litlu bleikstjörnóttu hryssu.
Það er ekki komið nafn á gripinn þannig að það bíður betri tíma. Þetta er alltaf jafn gaman að fara og sjá
meira »
|